
Svæðið
eyjólfsstaðaskógur
​
Á Eyjólfsstöðum hefur verið stunduð nytjaskógrækt frá árinu 1991 með stuðningi Héraðsskóga (Skógræktar ríkisins). Meira en 120 hektarar skógur hefur verið gróðursettur síðan 1990 í landi Eyjólfsstaða. Þar finnur þú frábærar gönguleiðir og stórkostlegt útsýni yfir í Lagarfljót. Merktar gönguleiðir eru meðfram Kaldá og niður að Grímsá. Einnig er mjög gaman að ganga um skóginn um land Eyjófsstaða.
​
Vök
​
Vök er heit náttúrulaug við Urriðavatn á Austurlandi. Staðsett aðeins 15 km norður af Eyjólfsstöðum. Vök er nýjasta náttúrulaug Íslands og státar af fyrstu og einu fljótandi laugum landsins, sem gera gestum kleift að baða sig í heitu vatni, innan og umhverfis vatnið.
​
Sundlauginn á Egilsstöðum
​
Sundlaugin á Egilsstöðum er frábær staður til þess að slaka á og fá sér sundsprett. Útisundlaug með heitum pottum og vatnsrennibraut. Hún er staðsett í miðsvæðis í bænum.
​
Hengifoss
​
Hengifoss er þriðji hæsti foss landsins, 128 metrar. Hann er staðsettur í Hengifossá í Fljótsdalshreppi. Það er umkringt basaltlagi með þunnt, rautt lag af leir milli basaltlaganna.
​
Óbyggðasetur Íslands
​
Óbyggðasetur Íslands er frábær staður til þess að heimsækja og kynnast hvernig forfeður okkur bjuggu á einu afsekktasta býli landsins sem er staðsett rétt við jaðar stærstu víðernis Norður-Evrópu. Þar er hægt að upplifa anda fortíðarinnar með margvíslegri þjónustu: einstaka gistingu, staðbundnum mat, sýningum, hestaferðum og gönguferðum, dagsferðum, fylgdarferðum og sérsniðnum ferðum.
​
Skriðuklaustur
​
Skriðuklaustur er sögustaður með rústum miðaldaklausturs frá 16. öld. Minjar klaustursins voru grafnar upp á árunum 2002-2012 í einni umfangsmestu fornleifarannsókn síðari ára. Á Skriðuklaustri stendur líka herragarðshúsið sem rithöfundurinn Gunnar Gunnarsson byggði árið 1939 þegar hann sneri heim eftir 30 ára dvöl í Danmörku. Í Gunnarshúsi er sýning um klaustrið og safn um Gunnar skáld með persónulegri leiðsögn fyrir gesti. Þar er jafnframt hið rómaða veitingahús Klausturkaffi.
​
Snæfellsstofa
​
Gesta- og upplýsingamiðstöð fyrir austurhluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Sýning um náttúru og líf á hálendinu, margmiðlun og fræðslustarf fyrir börn. Minjagripaverslun á staðnum.
​